Um sendiskrifstofu
Sendiráð Íslands á Indlandi er sömuleiðis sendiráð gagnvart Nepal, og Sri Lanka.
Sendiráðið var formlega opnað 26. febrúar 2006. Hlutverk sendiráðsins er að veita þjónustu við Íslendinga í umdæmisríkjunum og gæta hagsmuna Íslands, einkum á sviði utanríkis-, viðskipta- og menningamála.
Sendiráð Íslands í Nýju Delí
Heimilisfang33, B. S. Radhakrishna Marg,
Chanakyapuri
110021 New Delhi
Sími: +91 (0) 11 4353 0300
Netfang
Afgreiðsla mán - fim frá kl. 09:00 - 16:30 og fös 09:00-16:00
Sendiráð Íslands í Nýju DelíFacebook hlekkurSendiráð Íslands í Nýju DelíTwitte hlekkurSendiherra
Guðni Bragason
Fæddur í Reykjavík, 2. 5. 1957.
Störf:
2021 - Sendiherra í Nýju-Delhí, einnig í Bangla Desh, Nepal og Sri Lanka.
2018 - 2021 Fastafulltrúi og sendiherra í Vínarborg gagnvart Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE), Alþjóða kjarnorkumálastofnuninni (IAEA) og Samningnum um allsherjarbann við tilraunum með kjarnorkuvopn (CTBTO).
2017 - 2018 Alþjóðaskrifstofa utanríkisráðuneytisins í Rvík/Prótókollstjóri.
2016 - 2017 Ráðgjafi (Senior Advisor) á vegum utanríkisráðuneytisins í fiskideild Matvæla- og landbúnaðarstofnunar SÞ (FAO) í Róm.
2014 – 2015 Þróunarskrifstofa utanríkisráðuneytisins í Rvík.
2013 - 2014 Fastafulltrúi (Permanent Representative og Minister Plenipotentiary) í Róm gagnvart FAO og World Food Programme (WFP).
2009 – 2013 Forstöðumaður Íslensku friðargæslunnar (ICRU)), utn. Rvík.
2005 – 2009 Fastafulltrúi hjá stofnunum SÞ í Róm og Chargé d´Affaires sendiráðs Íslands gagnvart Ítalíu (Minister Plenipotentiary 2007).
2001 – 2005 Sendifulltrúi í sendiráði í Washington DC, Bandaríkjunum.
1999 – 2001 Prótókollstjóri í utanríkiráðuneytinu, Rvík.
1995 – 1999 Deildarstjóri í utn. fyrir stofnanir SÞ. Sendifulltrúi 1999.
1991 – 1995 Sendiráðsritari í Bonn, Þýskalandi.
1988 – 1991 Utanríkisráðuneytið: Varnarmálaskrifstofa, ritari varnarmálanefndar, menningar- og upplýsingadeild.
1985 – 1988 Fréttamaður á Sjónvarpinu (RÚV), Reykjavík.
Menntun:
1983 – 1985 New York University, Bandaríkjunum: M.A. í fjölmiðlun.
1978 – 1983 Ludwig-Maximilians Universität, München, Þýskalandi: Bókmenntafræði og fjölmiðlafræði.
1973 – 1977 Menntaskólinn í Reykjavík, fornmáladeild.
Viðurkenningar:
Order of the British Empire (1990), Legion d'Honneur (1990), Verdienstorden (1995), Finlands Lejons Orden (2000), Ordine della Stella della Solidarieta Italiana (2009).
Hlutverk kjörræðismanna er að gæta hagsmuna íslenskra ríkisborgara í gistiríki og styðja við stjórnmála-, viðskipta- og menningarsamstarf. Kjörræðismenn aðstoða einnig, eftir föngum, íslenska ríkisborgara sem eru í vanda staddir í gistiríki.
Upplýsingar um ræðismenn á umdæmissvæði sendiráðsins má finna hér að neðan: