Nefnd um samstarfssamning milli Grænlands og Íslands
Þann 8. júní 2010 undirrituðu heilbrigðisráðherrar Grænlands og Íslands samstarfssamning á sviði heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt samningnum var sett á laggirnar íslensk - grænlensk samstarfsnefnd, skipuð þremur fulltrúum frá hvoru landanna. Undirritaður var nýr samstarfssamningur milli Íslands og Grænlands í lok ágúst 2018.
Af hálfu Íslands eru eftirtaldir skipaðir í samstarfsnefndina:
Aðalmenn
- Bryndís Þorvaldsdóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu, formaður
- Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala
- Sigurður Einar Sigurðsson, framkvæmdastjóri lækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri
Varamenn
- Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður og ráðgjafi forstjóra á Landspítala
- Hildigunnur Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Nefndin er skipuð af heilbrigðisráðherra er frá 3. apríl 2019 til fjögurra ára.