Stöðunefnd framkvæmdastjóra hjúkrunar
Samkvæmt 37. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, með síðari breytingum, skipar ráðherra þrjá hjúkrunarfræðinga í nefnd er metur faglega hæfni umsækjenda um stöður framkvæmdastjóra hjúkrunar á heilbrigðisstofnunum sem ríkið rekur.
Nefndin skal skila rökstuddu áliti til þess sem ræður í stöðuna innan sex vikna frá því að umsóknarfresti lýkur. Ráða má hvern þann hjúkrunarfræðing til starfa samkvæmt þessari grein sem talinn hefur verið hæfur.
Aðalmenn
- Þórgunnur Hjaltadóttir, tiln. af Embætti landlæknis, formaður
- Ólafur Guðbjörn Skúlason, tiln. af Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga
- Eydís Kr. Sveinbjarnardóttir, tiln. af Háskóla Íslands
Varamenn
- Salbjörg Á. Bjarnadóttir, tiln. af Embætti landlæknis
- Hildur Helgadóttir, tiln. af Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga
- Þórunn Scheving Elíasdóttir, tiln. af Háskóla Íslands
Nefndin er skipuð frá 23. október 2022 til 22. október 2025.